Reglur um létt bifhjól

Vinsældir léttra bifhjóla í flokki I (oft nefndar rafvespur) hafa aukist mikið hér á landi hjá börnum og ungmennum. Samgöngustofa fær reglulega fyrirspurnir um reglur sem gilda um börn á slíkum hjólum. Gefinn hefur verið út bæklingur sem inniheldur upplýsingar um helstu atriði varðandi notkun og öryggi slíkra hjóla. Bæklingurinn er aðgengilegur hér.

Við bendum sérstaklega á að:
– Ökumaður verður að vera orðinn 13 ára.
– Ökumönnum er skylt skv. lögum að vera með hjálm.
– Ekki er leyfilegt að reiða farþega á hjólinu (nema að ökumaður sé 20 ára og hjólið til þess gert).
– Það á ekki að vera hægt að aka hjólunum hraðar en 25 km/klst.

Með leiðbeiningum og fræðslu fækkum við slysum og óhöppum. Með réttri notkun og með öryggið í fyrirrúmi verða létt bifhjól ekki til vandræða. Slysin verða ekki aftur tekin.