Skólamenningaráætlun Öll sem eitt

Skólamenningaráætlun Álfhólsskóla, Öll sem eitt, var tekin saman af Sigrúnu Erlu Ólafsdóttur með aðstoð Önnu Pálu Gísladóttur og Elísabetar Jónsdóttur vorið 2018. Skólamenningaráætlun tekur til alls skólasamfélagsins. Hún birtist og kemur fram í öllum hliðum skólastarfsins. Í grunninn snýst hún um það að við sem lærdómssamfélag erum öll að vinna að sameiginlegum markmiðum – Öll sem eitt. Skólamenningaráætlun er leiðarvísir um leiðir til þess að ná þessum sameiginlegu markmiðum.  Í viðauka hennar má svo m.a. finna viðbragðsáætlun vegna óviðunandi hegðunar og/eða brotum á skólareglum, aðgerðaráætlun um einelti og ofbeldi o.fl. 
Hér má nálgast skólamenningaráætlun í heild sinni auk viðauka.