oskudagur

Öskudagur

oskudagurNemendur og starfsfólk yngsta- og miðstigs skemmtu sér vel í skólanum á öskudaginn. Kötturinn var sleginn úr tunnunni í sal skólans og í íþróttahúsi.  Farið var í ýmsa bráðskemmtilega leiki, spilað bandý, húllahringsleik, fugladansinn og ásadans. Í stofunum voru saumaðir öskupokar, búnar til grímur og krakkarnir fóru í ýmsa leiki. Allir komu í búningum sem voru mjög flottir og skemmtu sér mjög vel eins og sjá má á myndunum.

http://www.flickr.com/apps/slideshow/show.swf?v=71649

Posted in Eldri fréttir.