Réttindaráð ÖSE

Samkvæmt 10. gr. laga um grunnskóla skal nemendafélag starfa í grunnskólum sem á m.a. að vinna að félags-, hagsmuna- og velferðarmálum þeirra.

Réttindaráð Öll sem eitt fundar með kennara úr stýrihópnum einu sinni í mánuði á yngsta- og miðstigi og einu sinni í viku á unglingastigi. Fyrir áramót funda fulltrúar í 3. og 4.bekk en eftir áramót bætast fulltrúar 2.bekkjar í hópinn.

Á fundunum er fjallað er um málefni nemenda, samskipti og líðan, gildi mánaðarins o.fl. Fulltrúar hittast oftar ef þörf krefur og nota Bekkjarrými (e. Google Classroom).

Fulltrúar ÖSE ráðsins upplýsa samnemendur um réttindi sín og stuðla að því að gera Álfhólsskóla að réttindaskóla UNICEF vorið 2024.

Verkefni ÖSE fulltrúa eru m.a. að:

  • Vera drífandi leiðtogar sem líða ekki einelti eða óæskilega hegðun og þora að mótmæla því.
  • Sýna gott fordæmi og umgangast aðra nemendur og starfsfólk af virðingu og umburðarlyndi.
  • Vera tenging milli starfsfólks og nemenda.
  • Leita til kennara og/eða námsráðgjafa ef minnsti grunur um alvarlegan samskiptavanda, einelti eða vanlíðan annars nemanda vaknar.
  • Vinna með gildi mánaða og hjálpa umsjónarkennurum að gera eitthvað sniðugt sem tengist hverju gildi.
  • Fylgjast vel með á Google Classroom, þar fara fundarboð ÖSE og önnur samskipti fram.
  • Vera höfundar að góðum skólabrag, vinna markvisst að því að efla jákvæða skólamenningu og samskipti.
  • Vinna að aðgerðaráætlun UNICEF fyrir skólana.

Brjóti fulltrúar skólareglur og/eða sýni með einhverjum hætti hegðun sem ekki telst til fyrirmyndar fá þeir munnlega áminningu. Séu þeir uppvísir af slíkri hegðun í annað sinn fá þeir skriflega áminningu og foreldrar fá sendan póst. Gerist þetta í þriðja sinn er fulltrúum vísað úr ráðinu. Sé fyrsta brot alvarlegt má víkja frá þessari reglu og vísa fulltrúanum umsvifalaust úr ráðinu. 

ÖSE-ráð 2023-2024 skipa:

Yngsta stig:

2.bekkur 3.bekkur 4.bekkur
Einar Alexander Sölvi Andri Dór
Rakel Eva Ísey Nicolas
Anton Páll Trausti Rúnar Bjarki Steinar
Vigdís Guiomar Marta
Arnar Logi Ágústa María
Salomea Tómas Kári

Miðstig:

5.bekkur 6.bekkur 7.bekkur
Elísabet Ása Bragi Jóel Hrafn
Katrín Arna Jóhannes Hrafn Árskóg Þórir
(Ingibjörg) Lea Kristján Sölvi Maria Motoc
Hrafnhildur Pétur Alana
Brynjar Freyr Eva
Hilmar

ÖSE réttindaráð á unglingastigi starfar jafnframt sem nemendaráð skólans. Nemendaráðið hefur í starfsreglum sínum valið sér nafnið nemendastjórn Álfhólsskóla. Nemendastjórn er ráðgefandi í stjórnun skólans og tveir fulltrúar þess eru jafnframt í skólaráði. ÖSE réttindaráðið á unglingastigi hefur fund í hádeginu. Nemendafulltrúar fara því einu sinni í viku 5-10 mín fyrr í mat og taka hann með sér inn á fundinn.

Starfsreglur nemendastjórnar Álfhólsskóla

  1. Félagið heitir nemendastjórn Álfhólsskóla, skammstafað N.Á.
  2. Stjórnin fundar einu sinni í viku en á í samskiptum þess á milli í gegnum bekkjarrými (e. Google classroom).
  3. Allir nemendur í 8.-10.bekk geta boðið sig fram í nemendastjórn. Þrír til fjórir nemendur í hverjum árgangi sitja í nemendastjórn hverju sinni.
  4. Ekki er heimilt að ræða mál einstakra nemenda á fundum stjórnarinnar.
  5. Brýnt er að fulltrúar nemenda í nemendastjórn séu til fyrirmyndar varðandi hegðun, framkomu og ástundun. Uppfylli nemendur ekki þessi skilyrði fá þeir áminningu og getur í kjölfarið verið vísað úr stjórninni.
  6. Fulltrúar nemendastjórnar geta tekið upp mál á fundum að eigin frumkvæði eða að frumkvæði annarra nemenda í skólanum.
  7. Fulltrúar sýna hver öðrum virðingu og hlusta ávallt á þau mál sem borin eru upp á fundum.
  8. Stjórnin kýs sér formann og fundarritara.
  9. Fundargerðir nemendastjórnar eru birtar á heimasíðu skólans, www.alfholsskoli.is  
  10. Tilgangur nemendastjórnar er að vera ráðgefandi í stjórnun skólans. Verkefni nemendaráðs er að fjalla um öll þau mál sem snúa að velferð og aðbúnaði nemenda skólans.
  11. Tveir fulltrúar nemendastjórnar sitja í skólaráði.
  12. Nemendastjórn berst fyrir rétti allra nemenda óháð vinsældum, stöðu, kyni eða aldri.
  13. Nemendastjórn setur sér framkvæmdaráætlun að hausti ár hvert sem birt er á heimasíðu skólans.  

ÖSE-ráð og nemendastjórn 2023-2024 skipa:

Unglingastig:

8.bekkur 9.bekkur 10.bekkur
Erna Karen Arna Kristín Aðalheiður
Iðunn Agla Arnar Leví
Kári Rafnar Bergur Dagur I.
Magnús Falk Vanja Danijela
Sóley Birta Sara Björk Embla Ísól
Sævar Kári Tryggvi
Sylvía
Frosti