Heilsurækt foreldrafélagsins

Foreldrafélag Álfhólsskóla
stendur fyrir heilsurækt í
íþróttahúsi HK í Digranesi
í vetur eins og mörg undanfarin ár.
Þar stunda foreldrar og aðrir
áhugasamir leikfimi sem er
fjölbreytt og skemmtileg,
undir stjórn Láru Sveinsdóttur
íþróttakennara.

Lögð er áhersla á þolfimi, palla, þrek- og teygjuæfingar. Mjög vel hefur verið mætt í
heilsuræktartímana undanfarin ár enda er þetta án efa ein ódýrarasta og besta líkamsrækt
sem völ er á. Heilsuræktin fylgir skóladagatalinu.
Tímarnir eru þrisvar í viku, mánudaga og miðvikudaga 18:00 – 19:00 og laugardaga 10:00 – 11:00.
Verði er stillt í hóf og kostar önnin aðeins 17.000 kr.
Foreldrar eru hvattir til að mæta í Digranes og nýta sér góða heilsurækt í nálægð við heimili sín.
Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.

(Uppfært 31.ágúst 2023)