Hjálmar í 1.bekk

Á dögunum fengu nemendur í 1. bekk hjálma að gjöf frá Kiwanisklúbbnum. Allir voru glaðir með hjálmana sína og þökkuðu brosandi fyrir sig. Rík áhersla var lögð á að þau noti hjálmana sína alltaf þegar þau fara út að hjóla, ekki bara á reiðhjóli heldur líka á hlaupahjóli, línuskautum og hjólabretti.

Posted in Fréttir.