Áframhaldandi verkfall

Upplýsingar vegna verkfalla og COVID-19

Upplýsingar vegna verkfalla og COVID-19

Ljóst er að verkfall starfsmanna í Eflingu við Samband íslenskra sveitarfélaga verður enn í gildi á morgun, miðvikudag, samkvæmt kvöldfréttum Rúv. Þar kom fram að fundi var slitið kl. 16:00 dag og næsti fundur ekki áætlaður fyrr en kl. 14:00 á morgun.

Vegna verkfalls starfsmanna í Eflingu miðvikudaginn 11.mars:

  • Nemendur verða að koma með nesti að heiman vegna morgunhressingar, hádegismatar og Frístundar.
  • Vegna smithættu þurfa börn að taka með sér öll áhöld að heiman. Mjög gott ef nemendur geta verið með sinn brúsa undir vatn og mikilvægt að merkja hann.
  • Nesti verður borðað í kennslustofum/matsal eftir aðstæðum.
  • Matarafgangar og umbúðir verða að fara heim með nemendum.
  • Ekki er hægt að hita vatn, grilla né hita mat í örbylgju.
  • Stuðningsfulltrúar, kennarar  og skólastjóri sinna gæslu í útifrímínútum.
  • Meta þarf stöðuna í þeim stofum sem Frístund notar og það gæti komið til lokunar með skömmum fyrirvara.
  • Á morgun verður úttekt á skólahúsnæðinu með tilliti til áframhaldandi skólastarfs vegna þrifa ef verkfall stendur enn.

Vegna COVID-19

  • Þjónustusími landlæknis er 1700.
  • Mikilvægt er að foreldrar barna með undirliggjandi sjúkdóma fái ráðleggingar um skólasókn í þjónustusíma landlæknis.
  • Fjölskyldur sem eru að koma úr fríi erlendis frá verða að fylgja öllum fyrirmælum landlæknisembættisins.
  • Verið er að skoða möguleika á fjarkennslu fyrir þá nemendur sem lenda í sóttkví eða einangrun.
  • Alla afgreiðslu á mat þarf að endurskipuleggja með tilliti til smithættu. Það verður gert eftir að verkfall leysist.
Posted in Fréttir.