Róbert Luu Íslandsmeistari í skólaskák

Úrslitakeppni yngri flokks á Landsmótinu í skólaskák fór fram síðasta miðvikudag í húsnæði Skákskóla Íslands. Hópur nemenda frá Álfhólsskóla tóku þátt í mótinu. Fjórir voru efstir og jafnir eftir aðalkeppnina. Tefldar voru 3 umferðir eða allir við alla og var þetta mjög jafnt. Róbert Luu í 8.bekk í Álfhólsskóla sigraði að lokum bráðabana um titilinn og er því Landsmótsmeistari 2018 í yngri flokk. Við óskum Róberti innilega til hamingju með árangurinn.

Posted in Fréttir.