Heimsókn Einhverfudeildar í Gerðarsafn

Nemendur í einhverfudeild fór í morgun í Gerðarsafn.  Þar var flott sýning í gangi sem 18 listamenn stóðu að.  Þema sýningarinnar var líkamleiki. Hún  var opnuð föstudaginn 19. janúar og er hluti af Ljósmyndahátíð Íslands 2018. Sýningin er hugleiðing um líkamann eins og hann birtist í samtímalist. Á sýningunni eru valin verk eftir listamenn sem eiga það sammerkt að vísa í líkamann og líkamleika af ýmsu tagi. Leiðarljós sýningarinnar er maðurinn sem líkamleg vera sem upplifir, bregst við og á samskipti við annað fólk, náttúru og borgarumhverfi. Leit að einlægu sambandi mannsins við heiminn má finna í formi líkamlegrar upplifunar og viðbrögðum við heiminum. Líkaminn birtist meðal annars sem miðill listamannsins í gjörningum þar sem hann umbreytist í skúlptúr, form og hreyfingu. Í öðrum verkum er sjónum beint að líkamlegum eiginleikum umhverfis okkar þar sem náttúrulegir og manngerðir hlutir verða áþreifanlegir og holdlegir.

Listamenn sýningarinnar eru Bára Kristinsdóttir, Claire Paugam, Eirún Sigurðardóttir, Elín Hansdóttir, Eva Ísleifsdóttir, Guðrún Benónýsdóttir, Haraldur Jónsson, Hrafnhildur Arnardóttir / Shoplifter, Hrafnkell Sigurðsson, Hreinn Friðfinnsson, Katrín Elvarsdóttir, Klængur Gunnarsson, Margrét Bjarnadóttir, Roni Horn, Sigurður Guðmundsson, Steina, Una Margrét Árnadóttir og Örn Alexander Ámundason.

Sýningarstjóri er Brynja Sveinsdóttir.

Sýningin er hluti af Ljósmyndahátíð Íslands 2018.

Posted in Fréttir.