Jólasveinalestur

Í jólafríinu stóð Menntamálastofnun ásamt FFÁS – Félagi fagfólks á skólasöfnum og KrakkaRÚV, fyrir lestrarsprettinum  Jólasveinalestur, dregið hefur verið úr þeim hópi barna er tóku þátt.Stefán Baldur Tómasson 7 ára nemandi hjá okkur í  Álfhólsskóla var þar á meðal, hann fékk viðurkenningarskjal og bók að gjöf fyrir þátttökuna og afhentum við honum það í morgun.
Stefán Baldur las 220 blaðsíður og fékk hann mikið klapp og hamingjuóskir frá bekkjarfélögunum og kennurum við afhendinguna.

Posted in Fréttir.