Góður árangur Álfhólsskóla í Skólahreysti

Þriðjudaginn 14. mars fór fram keppni í Skólahreysti í Hofstaðaskóla í Garðabæ. Fulltrúar Álfhólsskóla þau Hugrún Helgadóttir, Elín Rósa Sæbjörnsdóttir, Þorvaldur Tumi Baldursson og Aron Bjarki Ingvason stóðu sig með mikilli prýði og enduðu í öðru til þriðja sæti  í sínum riðli. Tólf skólar tóku þátt í þessum sterka riðli.  Til hamingju með góðan árangur.
Posted in Fréttir.