Öskudagur á yngsta stigi

Við hér á yngsta stigi  héldum upp á öskudaginn.  Komum flest í búningum og var mikið fjör hjá okkur.

Hver árgangur kom á sal og marseraði, dansaði og sló síðan köttinn úr tunnunni. Valinn var tunnukóngur og tunnudrottning. Hér eru nokkrar myndir af deginum hjá okkur.  

Endaði dagurinn svo á að foreldrafélagið okkar færði okkur nammipoka.

Posted in Fréttir.