Álfhólsskóli Íslandsmeistari

Álfhólsskóli fór með sigur af hólmi í Íslandsmóti barnaskólasveita um helgina en 49 sveitir tóku þátt í mótinu, sem er næstmesta þátttaka frá upphafi.
Þrátt fyrir það vantaði nokkrar sveitir og komst sveit Brekkuskóla frá Akureyri ekki á mótsstað sökum mikillar ófærðar. Fyrirfram mátti búast við nokkrum sveitum í toppbaráttunni. Það kom á daginn og eftir fyrri keppnisdag voru margar sveitir við toppinn en Íslandsmeistararnir í Álfhólfsskóla höfðu þó tveggja vinninga forskot á Hraunvallaskóla og Rimaskóla, segir í tilkynningu frá Skáksambandi Íslands.
Í sjöttu umferð mættust Álfhólsskóli og Hraunvallaskóli. Álfhólsskóli vann þá viðureign 3-1 eftir þónokkrar sviptingar. Í sjöundu umferð lögðu þeir svo aðra hönd á bikarinn með sannfærandi sigri á Rimaskóla 3-1. Hörðuvallaskóli hefur á að skipa harðskeyttri sveit leiddri áfram af Vigni Vatnari Stefánssyni. Sveit skólans náði einum og hálfum vinningi af Álfhólsskóla í áttundu og næstsíðustu umferð og setti þar með mikla spennu í mótið þar sem Rimaskóli vann sína viðureign 4-0.
Fyrir lokaumferðina hafði því Álfhólsskóli einn og hálfan vinning í forskot á Rimaskóla. Erfitt verkefni beið Álfhólsskóla í síðustu umferðinni þegar sveitin tefldi við Ölduselsskóla sem hefur á að skipa sterkri sveit og sérstaklega eru efstu tvö borðin sterk með Mykael Kravchuk og Óskar Víking Davíðsson. Fór svo að Óskar vann sína skák og kom Ölduseli þannig yfir í viðureigninni. Taugar Álfhólsskólamanna héldu þó vel og höfðu þeir viðureignina 2,5-1,5, sem dugði til sigurs.
Álfhólsskóli er því Íslandsmeistari barnaskólasveita 2014 og það þriðja árið í röð. Sveit Rimaskóla varð í öðru sæti og vann sér þannig rétt til þátttöku á NM barnaskólasveita rétt eins og Álfhólsskóli en keppnin fer fram á Íslandi í haust. Hörðuvallaskóli tók svo bronsið eftir harða baráttu. Munar þar mikið um árangur Vignis Vatnars sem tapaði aðeins hálfum vinningi niður.
„Álfhólsskóli er vel að sigrinum kominn. Gríðarlega gott utanumhald er um alla skákiðkun og kennslu í skólanum. Metnaðarfullir skákmenn, sterkur foreldrahópur og einstakur þjálfari í Lenku Ptacniková sem á mikinn heiður skilið fyrir framlag sitt til skákuppbyggingar í Kópavogi. Sveitin mun endurnýjast töluvert á næsta ári en Felix Steinþórsson og Guðmundur Agnar Bragason tefldu nú á sínu síðasta Íslandsmóti barnaskólasveita. Þeir kappar hafa heldur betur skilað sínu á síðustu árum,“ segir í tilkynningu.
Íslandsmeistarar Álfhólsskóla
1. Felix Steinþórsson
2.  Guðmundur Agnar Bragason
3. Halldór Atli Kristjánsson
4. Róbert Luu
Liðstjóri: Lenka Ptácníková
Silfursveit Rimaskóla
1. Nansý Davíðsdóttir
2. Kristófer Halldór Kjartansson
3. Joshúa Davíðsson
4. Mikel Maron Torfason
Liðsstjóri: Hjörvar Steinn Grétarsson
Bronssveit Hörðuvallaskóla
1. Vignir Vatnar Stefánsson
2. Sverrir Hákonarson
3. Arnar M. Heiðarsson
4. Stephan Briem
v. Andri Harðarson
Liðsstjóri: Gunnar Finnsson
Besta B-sveitin: Salaskóli B
Besta C-sveitin: Rimaskóli C
Besta D-sveitin: Rimaskóli D
Besta E-sveitin: Salaskóli E
Besta F-sveitin: Salaskóli F
Besta G-sveitin: Álfhólsskóli G
Efsta stúlknasveitin: Rimaskóli C
Efstu sveitir skipaðar nemendum í 1.-4. bekk
1. Rimaskóli D
2. Salaskóli D
3. Ingunnarskóli B
Borðaverðlaun:
1. borð: Vignir Vatnar Stefánsson Hörðuvallaskóla 8.5/9
2. borð: Guðmundur Agnar Bragason Álfhólsskóla, Árni Ólafsson Hlíðaskóla, Helgi Svanberg Jónsson Hraunvallaskóla og Óskar Víkingur Davíðsson Ölduselsskóla allir með 7/9
3. borð: Joshúa Davíðsson Rimaskóla 8/9
4. borð: Róbert Luu Álfhólsskóla 8.5/9
Mótið heppnaðist vel í alla staði. Rimaskóla eru færðar þakkir fyrir samstarfið en þar er starfsfólk og foreldrar orðið ansi vant að hjálpa til við skákmót og liðlegheitin í fyrirrúmi. Liðsstjórum sveitanna er sérstaklega þakkað fyrir frábær störf um helgina. Íslandsmót grunnskólasveita fer fram eftir tvær vikur á Stórutjörnum í Þingeyjarsýslu.
Lokastöðu mótsins má nálgast hér.

Frétt fengin að láni frá Mbl.is 

Posted in Eldri fréttir.