Gengið gegn einelti 8. nóvember

Föstudagurinn 8. nóvember er helgaður forvörnum gagnvart einelti í samfélaginu.  Að þessu sinni tekur Álfhólsskóli höndum saman við leikskólana Álfaheiði, Engjahjalla og Fögrubrekku.  Nemendur skólanna hittast og ganga saman gegn einelti. Nemendur á yngsta stigi ganga með nemendum á Álfaheiði, miðstig með  nemendum á Fögrubrekku og unglingastig með nemendum á Efstahjalla.
Allir hóparnir hittast síðan í íþróttahúsinu Digranesi þar sem verður stutt sameiginleg dagskrá með söng og dansi. Gangan hefst kl. 10 og eru vegfarendur í hverfinu beðnir um að sýna sérstaka aðgát á þessum tíma. Hér er linkur á síðuna Gegn einelti.
Posted in Fréttir.