Foreldraverðlaun Heimilis og skóla

image001Foreldrafélag Álfhólsskóla hlaut þann heiður að vera eitt af 28 verkefnum sem var tilnefnt til foreldraverðlauna Heimilis og skóla. Þessi tilnefning er viðurkenning á því að vel hafi tekist til við að koma á fót nýju foreldrafélagi í sameinuðum skóla og er mikil hvatning fyrir þá sem starfa fyrir félagið. 
Verðlaunaafhendingin fór fram í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Á heimasíðu Heimilis og skóla má sjá fréttir og myndir frá þessum viðburði og hverjir hlutu verðlaunin.
Foreldrafélagið fékk viðurkenningarskjal fyrir að vera tilnefnt til verðlaunanna. 

Posted in Eldri fréttir.