Ljóðskáld í Álfhólsskóla

Ólafur Örn Ploder ljóðskáldÞrettán grunnskólabörn úr Kópavogi voru í dag verðlaunuð á ljóðahátíð í Salnum fyrir ljóð sem þau sendu inn í ljóðasamkeppni grunnskólanna í bænum. Þar á meðal var Ólafur Örn Ploder úr Álfhólsskóla.  Hann var í einu af þremur efstu sætunum.  Nemendur úr sex skólum sendu ljóð í keppnina sem haldin er í fyrsta sinn í ár. Ljóst er  að keppnin er komin til að vera.

Þau sem urðu í þremur efstu sætunum eru Katrín Kemp úr Vatnsendaskóla fyrir ljóðið Vetrarkvöld, Hrönn Kristey Atladóttir úr Hörðuvallaskóla fyrir ljóðið Skógarljóð og Ólafur Örn Ploder úr Álfhólsskóla fyrir ljóðið Bolti.

Ljóðasamkeppni grunnskólanna er haldin í tengslum við hina árlegu ljóðasamkeppni menningar- og þróunarráðs sem kennd er við skáldið Jón úr Vör.  Þátttakan í grunnskólakeppninni var mjög góð og er stefnt að því að hún verði árviss viðburður hér eftir. Markmiðið er ekki síst að efla áhuga barna og ungmenna á ljóðagerð.

Fjöldi grunnskólabarna í bænum tók þátt og yfir sextíu ljóð voru send áfram til dómnefndar sem valdi þrettán verðlaunaljóð og þar af þrjú ljóð sem voru í þremur efstu sætum.

Guðrún Pálsdóttir bæjarstjóri og Hafsteinn Karlsson, formaður menningar- og þróunarráðs, afhentu verðlaunin, bókargjöf og blómvendi. Þau Katrín, Hrönn Kristey og Ólafur Örn lásu síðan upp verðlaunaljóðin sín.

Dómnefnd skipuðu Gerður Kristný, ljóðskáld og rithöfundur, Jón Yngvi Jóhannsson bókmenntafræðingur og Sigurður Pálsson, ljóðskáld og rithöfundur.

Eftirfarandi grunnskólabörn fengu viðurkenningu í grunnskólakeppninni, auk þeirra þriggja sem þegar hafa verið nefnd:

Anna Margrét, Vatnsendaskóla

Steingrímur Bersi, Vatnsendaskóla

Fanney Einarsdóttir, Lindaskóla

Selma M. Gísladóttir, Hörðuvallaskóla

Róbert Atli Svavarsson, Lindaskóla

Baldvin Snær, Vatnsendaskóla

Anna Margrét Soussounis, Hörðuvallaskóla

Katrín Þóra Hermannsdóttir, Kársnesskóli

Lilja Lind Helgadóttir, Kársnesskóla

Líney Ragna Ólafsdóttir, Salaskóla

Posted in Eldri fréttir.