Heilsurækt foreldrafélagsins

forelleikfFFAForeldrafélag Álfhólsskóla stendur fyrir heilsurækt í íþróttahúsi HK í Digranesi í vetur eins og mörg undanfarin ár. Þar stunda foreldrar og aðrir áhugasamir leikfimi sem er fjölbreytt og skemmtileg, undir stjórn Láru Sveinsdóttur íþróttakennara. Lögð er áhersla á þolfimi, palla, þrek- og teygjuæfingar. Mjög vel hefur verið mætt í heilsuræktartímana undanfarin ár enda er þetta án efa ein ódýrarasta og besta líkamsrækt sem völ er á. Heilsuræktin fylgir skóladagatalinu. Tímarnir eru þrisvar í viku, mánudaga og miðvikudaga 18:30 – 19:30 og laugardaga 10:00 – 11:00. Verði er stillt í hóf og kostar öll haustönnin aðeins 12.000 kr. (september – desember). Foreldrar eru hvattir til að mæta í Digranes og nýta sér góða heilsurækt í nálægð við heimili sín. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.

 

 

 

 

 

 

Posted in Foreldraleikfimi.